:quality(72))
Silja Rós og Magnús Orri
Silja Rós og Magnús Orri hafa þau síðastliðin tíu ár heillað hlustendur sína með ljúfum djass yfir hátíðirnar og önnur tilefni.
Silja Rós hefur starfað sem söngkona og lagahöfundur í yfir 15 ár. Hún hefur alltaf sótt mikinn innblástur til jazz tónlistar í sínum lagasmíðun og útskrifaðist sem jazz söngkona frá FÍH. Síðan þá hefur hún starfað sem jazz söngkona ásamt því að gefa út sitt eigið efni og hefur skapað sér sérstöðu á Íslandi með tónlist sem sameinar neo-soul hljóðheim með popp lagasmíðum. Silja Rós tók einnig þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2023 og starfar líka sem leikkona og handritshöfundur.
Gítarleikarinn Magnús Dagsson er lærður klassískur gítarleikari og jazz gítarleikari. Hann útskrifaðist með hæstu einkunn frá Musician Institute árið 2018, áður hafði hann stundað nám við FÍH. Magnús leggur mikla áherslu á melódískar útsetningar.
Silja Rós og Magnús töfra fram huggulega einlæga stemningu sem hentar vel á jólahlaðborð, árshátíðir, brúðkaup og önnur tilefni.